Um mig:
Ég er lítill gullmoli sem var væntanlegur 21. október 2008 en ég lét bíða eftir mér í heila 4 daga en mömmu og pabba fannst þau bíða mikið lengur. Ferðin var ekkert voðalega auðveld og endaði með því að ég var tekinn með keisara og kom ég í heiminn kl. 19:17 þann 25. október. Ég var 3500 gr eða 14 merkur og 50 cm. Gullfallegur og fullkominn :)






SPORÐDREKINN

24.Október - 21.Nóvember
Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann.




MAMMA MÍN ER KONAN


Mamma er konan sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn
fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og
ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsa
meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum
fötum, og laga til í herberginu sínu
leyfir mamma það ekki því hún er svo
vön að hugsa vel um barnið sitt.
Mamma er alltaf til staðar með
út rétta hjálparhönd þegar á þarf að halda,
þerra tárin þegar það er leiðinlegt og gleðjast
með manni þegar gaman er að vera til.


MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI!!!!



PABBI ER MAÐURINN


Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að
það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður.
En það tekur hann bara nokkra daga að komast
niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað
sofið alla nóttina og kúkað í klósettt eins og
annað fólk.
Samt veit hann allt!! svo þegar maður verður
aðeins eldri og það er hægt að fara að leika
við mann og kenna manni ýmislegt finnst
honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar
á þarf að halda.

PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI !!!!!!!



Þú ert gestur nr. 6487